Exista starfar á sviði trygginga, eignaleigu og fjárfestinga. Exista á að fullu tvö tryggingafélög, VÍS og Lífís, og eignaleigufyrirtækið Lýsingu. Exista á einnig 100% hlut í Skiptum, móðurfélagi Símans. Félagið á einnig hluti í nokkrum öðrum fyrirtækjum, meðal annars um helmingshlut í Öryggismiðstöðinni.
 |
|
VÍS er eitt af stærstu vátryggingafélögum landsins. Fyrirtækið stundar almenna tryggingastarfsemi og býður alhliða tryggingalausnir fyrir einstaklinga, fjölskyldur, fyrirtæki, sveitarfélög og stofnanir. |

|
|
Lífís býður viðskiptavinum sínum líftryggingar og aðrar heilsutengdar tryggingar, svo sem sjúkdómatryggingar, söfnunarlíftryggingar og tekjutryggingar. |
|
|
Lýsing er leiðandi fyrirtæki í fjármögnun með eignaleigusamninga á Íslandi. Aðalstarfsemi Lýsingar hefur frá upphafi verið á sviði eignaleigu og fyrirtækið fjármagnar atvinnutæki, atvinnuhúsnæði og bifreiðar fyrir fyrirtæki og einstaklinga. |

|
|
Skipti er móðurfélag Símans, sem er í fararbroddi á íslenskum fjarskiptamarkaði. Innan Skipta eru einnig erlend fyrirtæki, m.a. Sirius IT sem er öflugt fyrirtæki á sviði upplýsingatækni á Norðurlöndum. |
|
|
|

|
|
Öryggismiðstöðin býður heildarlausnir í öryggismálum fyrir fyrirtæki og einstaklinga. |