Exista starfar á sviði trygginga og eignaleigu og á að fullu eftirtalin fyrirtæki:
· VÍS er annað tveggja stærstu vátryggingafélaga landsins. Fyrirtækið stundar almenna tryggingastarfsemi og býður alhliða tryggingalausnir fyrir einstaklinga, fjölskyldur, fyrirtæki, sveitarfélög og stofnanir.
· Lífís býður viðskiptavinum sínum líftryggingar og aðrar heilsutengdar tryggingar, svo sem sjúkdómatryggingar, söfnunarlíftryggingar og tekjutryggingar.
· Lýsing er leiðandi fyrirtæki í fjármögnun með eignaleigusamninga á Íslandi. Aðalstarfsemi Lýsingar hefur frá upphafi verið á sviði eignaleigu og fyrirtækið fjármagnar atvinnutæki, atvinnuhúsnæði og bifreiðar fyrir fyrirtæki og einstaklinga.
· Skipti er móðurfélag Símans, sem er í fararbroddi á íslenskum fjarskiptamarkaði. Innan Skipta eru einnig erlend fyrirtæki, m.a. Sirius IT sem er öflugt fyrirtæki á sviði tölvuþjónustu á Norðurlöndum.
Auk þess á Exista hluti í nokkrum öðrum fyrirtækjum, m.a. rösklega helmings hlut í Öryggismiðstöðinni. Höfuðstöðvar Exista eru í Ármúla 3 í Reykjavík.